Brecce Rosse White Truffle

  • Ólívuolíur

460 013 ISK (incl. VAT)

Extra Virgin Olive oil - Hvítar trufflur. 250 ml. Brecce Rosse White truffle er framleidd úr Brecce Rosse EVO ólívuolíunni og til að ná fram einstöku trufflubragðinu er eingöngu notast við ferskar hvítar trufflur. Engin bragð- eða aukaefni eru notuð sem gerir bragðbættu olíurnar þeirra engum öðrum sambærilegum olíum líkum. Brecce Rosse er lítið fjölskyldufyrirtæki í Umbria héraði, sem framleiðir hágæða ólívuolíur í takmörkuðu magni. ÓIívurnar þeirra eru ávallt pressaðar "beint af akrinum", einungis fáeinum stundum eftir að hafa verið tíndar, til að tryggja hina einstöku bragðeiginleika Brecce Rosse. Ólívutrén eru ræktuð í steinefnaríkum jarðvegi í hæðunum fyrir ofan bæinn Gubbio, og engin aukaefni eru notuð við ræktun ólívanna eða framleiðslu þessarar ljúffengu ólívuolíu. Nær allir helstu veitingastaðirnir í Gubbio og nágrenni nota Brecce Rosse ólívuolíurnar.

BACKSOON UNSUBSCRIBED

We use cookies.

We use cookies and other tracking technologies to optimize our website and improve your experience. Learn more by reading our Cookies Notice.

Alternatively, you can manage your cookies here.