8 700 ISK
Góður grunnur í einum pakka. 1 Brecce Rosse EVO, 1 Extra virgin olive oil, infused with natural white truffles, 2 tegundir af pasta að eigin vali & hunang.
Í greiðsluferlinu er hægt að skrifa í skilaboðum hvaða tegunda af pasta er óskað eftir.
---
Brecce Rosse er lítið fjölskyldufyrirtæki í Umbria héraði, sem framleiðir hágæða ólívuolíur í takmörkuðu magni.
ÓIívurnar þeirra eru ávallt pressaðar "beint af akrinum", einungis fáeinum stundum eftir að hafa verið tíndar, til að tryggja hina einstöku bragðeiginleika Brecce Rosse.
Ólívutrén eru ræktuð í steinefnaríkum jarðvegi í hæðunum fyrir ofan bæinn Gubbio, og engin aukaefni eru notuð við ræktun ólívanna eða framleiðslu þessarar ljúffengu ólívuolíu.
Nær allir helstu veitingastaðirnir í Gubbio og nágrenni nota Brecce Rosse ólívuolíurnar.
---
Il Re della Pasta framleiðir hágæða pasta í miðjum höfuðstaðs pastans, Gragnano, en þar var fundin upp einstök aðferð við að framleiða og þurrka pasta, snemma á 14. öld.
Eingöngu er notast við hágæða 100% durum hveiti, sem ræktað er í helstu matarhéruðum Ítalíu, eða Puglia, Marche, Basilicata og Molise.
Vatnið sem notað er til framleiðslunnar kemur úr uppsprettum í Lattari fjöllunum, eða úr "Forma" sem er virk söguleg uppspretta sem í gegnum aldirnar knúði myllurnar í hlíðum Gragnano, ásamt því að vera lykil hráefni í pasta deigið, þá sem og í dag.
Pasta deig Il Re della Pasta er alltaf bronsskorið (þ.e. hnífamótin eru úr bronsi), en sú aðferð er notuð til að gera yfirborð pastans aðeins hrufótt og tryggja þannig að sósan bindist vel við það þegar það er borið fram.
---
Opera er lítill framleiðandi á hágæða hunangi frá Umbria. Opera er einnig þekkt fyrir saffran vörurnar sínar.