Brecce Rosse EVO
446 600 ISK (með VSK)
Extra Virgin Olive oil. 500 ml. Brecce Rosse er lítið fjölskyldufyrirtæki í Umbria héraði, sem framleiðir hágæða ólívuolíur í takmörkuðu magni. ÓIívurnar þeirra eru ávallt pressaðar "beint af akrinum", einungis fáeinum stundum eftir að hafa verið tíndar, til að tryggja hina einstöku bragðeiginleika Brecce Rosse. Ólívutrén eru ræktuð í steinefnaríkum jarðvegi í hæðunum fyrir ofan bæinn Gubbio, og engin aukaefni eru notuð við ræktun ólívanna eða framleiðslu þessarar ljúffengu ólívuolíu. Nær allir helstu veitingastaðirnir í Gubbio og nágrenni nota Brecce Rosse ólívuolíurnar.