Bucatini di Gragnano

  • Pasta

140 879 ISK (með VSK)

Bucatini er aðeins sverara um sig en spaghetti en er holt að innan. Bugatini er mikið notað í ýmsa fræga rétti frá Róm, svo sem All'amatriciana, Carbonara, Cacio e pepe og Grigio, en er gott í flesta rétti þar sem þú vilt góða upptöku á sósunni. 500 gr. Il Re della Pasta framleiðir hágæða pasta í miðjum höfuðstaðs pastans, Gragnano, en þar var fundin upp einstök aðferð við að framleiða og þurrka pasta, snemma á 14. öld. Eingöngu er notast við hágæða 100% durum hveiti, sem ræktað er í helstu matarhéruðum Ítalíu, eða Puglia, Marche, Basilicata og Molise. Vatnið sem notað er til framleiðslunnar kemur úr uppsprettum í Lattari fjöllunum, eða úr "Forma" sem er virk söguleg uppspretta sem í gegnum aldirnar knúði myllurnar í hlíðum Gragnano, ásamt því að vera lykil hráefni í pasta deigið, þá sem og í dag. Pasta deig Il Re della Pasta er alltaf bronsskorið (þ.e. hnífamótin eru úr bronsi), en sú aðferð er notuð til að gera yfirborð pastans aðeins hrufótt og tryggja þannig að sósan bindist vel við það þegar það er borið fram. Vegna þessa framlag sitt til menningararfleifðar Ítalíu var Gragnano síðan útnefnd sem IGP, af evrópusambandinu 2013, en það stendur fyrir Sérstakt og verndað landsvæði. Útvaldir pastaframleiðendur, sem framleiða samkvæmt skilgreindum aðferðum og gæðastöðlum Gragnano, fá að merkja vörur sínar með IGP stymplinum og Il Re della Pasta, er einn af þeim.

BACKSOON UNSUBSCRIBED

Við notum vafrakökur.

Við notum vafrakökur og aðra rakningatækni til að bæta vefsíðuna okkar og gera upplifun þína sem besta. Til að fá frekari upplýsingar geturðu skoðað Vafrakökustefnuna okkar.

Að öðrum kosti getur þú stillt vafrakökurnar þínar hér.